Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem vilja læra skyndihjálp og endurlífgun og öðlast þekkingu og góða færni í að veita nærstöddum aðstoð í bráðatilfellum. Námskeið fyrir þá sem vilja gefa sér góðan tíma í að læra skyndihjálp s.s. almenning, sjálfboðaliða í skyndihjálparhópum Rauða krossins og nemendur sem fá einingu fyrir að taka skyndihjálparnámskeið.
Markmið:
- Að auka þekkingu og færni þátttakenda í að beita á öruggan hátt einföldum aðferðum í skyndihjálp.
- Að auka færni í að meta einkenni algengra sjúkdóma og áverka.
Viðfangsefni
- Kynning; hvað er skyndihjálp?
- Undirstöðuatriði; streita í neyðartilfellum, tilfinningarleg viðbrögð eftir að hafa veitt skyndihjálp, sálrænn stuðningur og að forðast sýkingar.
- Fjögur skref skyndihjálpar; tryggja öryggi á vettvangi, meta ástand slasaðra eða sjúkra, sækja hjálp og veita skyndihjálp.
- Grunnendurlífgun og sjálfvirkt hjartastuð; að athuga viðbrögð, að opna öndunarveg, að athuga öndun, hjartahnoð og blástursaðferð, sjálfvirkt hjartastuð (AED), endurlífgunarkeðjan, hliðarlega og losun aðskotahlutar úr öndunarvegi.
- Skyndihjálp:
- Áverkar; innvortis- og útvortis blæðingar, sár, brunasár, áverkar á höfði, hálsi eða baki, áverkar á beinum, vöðvum eða liðum, eitranir hitaslag/hitaörmögnun og ofkæling.
- Bráð veikindi; brjóstverkur (hjartaáfall), bráðaofnæmi, heilablóðfall, flog, sykursýki og öndunarerfiðleikar (astmi).
- Skyndihjálp framhald; nánari líkamsskoðun, eitrun, blóðnasir, lost, sár og sáraumbúðir, raflost, höfuðáverkar, tannáverkar, skorðun á hrygg, áverkar á brjóstkassa og kvið, vöðvakrampar, sýklasótt, yfirlið og spelkun útlima.
Fræðsluefni
Kennsluglærur. Útgefandi fræðsluefnis er Rauði krossinn á Íslandi.
Inntökuskilyrði
Æskilegt er að þátttakendur kynni sér fræðsluefnið áður en námskeiðið hefst.
Námsmat
Frammistaða er metin samfellt í gegnum allt námskeiðið. Ekki er skylda að ljúka skriflegu eða verklegu prófi en þátttakendum stendur það þó til boða í lok námskeiðs.
Viðurkenning
Eftir að hafa setið námskeiðið fá þátttakendur viðurkenningu frá Rauða krossinum á Íslandi og velferðarráðuneytinu. Mælt er með endurmenntun annað hvert ár.
Efnisatriðin eru viðbót fyrir 4 klst. námskeið.
- Eitranir
- Hitaslag / hitaörmögnun og ofkæling
- Lost
- Blóðnasir
- Sár og sáraumbúðir
- Raflost
- Höfðuáverkar
- Tannáverkar
- Skorðun á hyrgg
- Áverkar á brjóstkassa og kvið
- Vöðvakrampar
- Sýklasótt
- Yfirlið
- Spelkun útlima
Tímasetning nánar auglýst síðar