Viltu læra að prjóna – og eignast dásamlega fallega peysu í leiðinni? 

Þá er þetta námskeið fyrir þig! 

Við hittumst við eldinn á Stéttinni á fimmtudögum kl. 20:00–22:00 

Námskeiðið stendur yfir í 4 skipti og hefst 17. september

Verð 21.000 kr.  

Kennari er Hugrún Rúnarsdóttir, sem leiðir þig í gegnum öll skrefin – hvort sem þú ert byrjandi eða með smá reynslu. 

Þátttakendur fá uppskrift af einfaldri peysu og fá leiðbeiningar um hvaða garn hentar.

Námskeiðið er tilvalið fyrir byrjendur eða þau sem vilja rifja upp gamla takta.  

Komdu og njóttu notalegra kvöldstunda með prjónana

Við hvetjum þátttakendur á að kanna möguleika á endurgreiðslu þátttökugjalds hjá starfsmenntasjóðum stéttarfélaga.