Þekkingarnetið, ásamt 6 samstarfsaðilum sem flestir eru erlendir, hlaut nýverið styrk úr Erasmus+ áætluninni til verkefnis sem hefur heitið NICHE 2, en sú skammstöfun stendur fyrir “Nurturing Ingangible Cultural Heritage for Enrepreneurship”. Um er að ræða styrk úr samkeppnissjóð upp á 250 þúsund Evrur til verkefnisins í heild, sem samsvarar um 37 milljónum króna sem deilast á samstarfsaðilana sex.
Þróunarverkefni af þessu tagi sem fjármögnuð eru með sjálfsaflafé úr Evrópusjóðum hafa undanfarin ár verið mikilvægur hluti starfseminnar og af samstarfinu hlotist mikil þekking og gagnlegar afurðir. Margt af því sem unnið er með í samstarfsverkefnum þessum skilar sér með beinum og óbeinum hætti í námsframboði og rannsóknarverkefnum stofnunarinnar. Arnþrúður Dagsdóttir, verkefnastjóri Þekkingarnetsins sem starfar í Mývatnssveit, hefur umsjón með flestum Evrópuverkefnum Þekkingarnetsins og getur veitt nánari upplýsingar um þau (ditta@hac.is).
