Menningarmiðlun á Þórshöfn

Í gær héldum við fjölmenningarlegan viðburð á Þórshöfn þar sem markmiðið var að kynna hina fjölbreyttu menningu sem er að finna í okkar sveitarfélagi. Viðburðurinn er hluti af verkefninu Menningarmiðlun og styrktur af Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra. Íbúum var boðið á Holtið veitingastað, sem framreiddi dýrindis grænmetissúpu og nýbakað brauð meðan sjö íbúar voru með fjölbreyttar og skemmtilegar kynningar. Skemmtilegur og notalegur viðburður þar sem við kynntumst betur okkar frábæru íbúum. Viðburðurinn var styrktur af Uppbyggingarsjóði SSNE.

Vivian Stoyanova frá Búlgaríu kynnti land og þjóð.
Liina Bergmann frá Eistlandi sagði frá jólasiðum í sínu heimalandi.
Hallsteinn Stefánsson sagði sögur frá sjómannslífi sínu en hann hefur siglt um öll heimsins höf.
Ina Leverköhne sýndi ýmsa muni sem tengjast æskujólum hennar í Þýskalandi, auk þess að fara með ljóð og syngja jólalag, auðvitað á þýsku.
Ilia Iliev frá Búlgaríu söng búlgarskt þjóðlag, en útgáfa af þessu lagi er á gullna diskinum um borð í geimfarinu Voyager 2.
Irene Paparo frá Ítalíu kynnti matarhefðir frá héraði sínu Emilia-Romagna.
Potrykus fjölskyldan frá Póllandi kynnti pólskar jólahefðir og sungu pólskan jólasálm.