Hvað segja ferðamenn um Húsavík?

Nú þegar bærinn fyllist af ferðamönnum og þjónustuaðilar setja sig í stellingar væri ekki vitlaust að kíkja á niðurstöður könnunar meðal erlendra ferðamanna sem Þekkingarnetið framkvæmdi á Húsavík sumarið 2024. Að skilja væntingar og upplifanir ferðamanna er mikilvægt til að geta boðið framúrskarandi þjónustu.
💡 Nokkur áhugaverð atriði úr könnuninni:
🔹 Meðaldvalarlengd erlendra gesta á Húsavík er 16 klukkustundir.
🔹 Tæpur helmingur þeirra gistir yfir nótt.
🔹 20% þeirra sögðust hafa orðið fyrir áhrifum kvikmynda og sjónvarpsþátta (mismiklum þó) þegar þeir völdu Húsavík sem áfangastað
🔹 Hvalaskoðun er enn aðalaðdráttaraflið en margir nefna líka fallega bæinn, einstakt landslag og náttúru.
Við hvetjum ferðaþjónustuaðila og aðra til að kynna sér niðurstöðurnar og erum tilbúin í spjall með þeim sem hafa spurningar eða athugasemdir.
Skýrsluna má finna á heimasíðu Þekkingarnetsins: https://hac.margmidlun.is/wp-content/uploads/visitor-survey-Husavik.pdf
May be a graphic of einn eða fleiri, map og texti
Gæti verið mynd af texti