Dagana 21.–23. maí sl. var hið árlega „Boot Camp“ Fab Lab smiðjanna á Íslandi haldið á Húsavík. Um er að ræða þriggja daga viðburð þar sem starfsfólk Fab Lab smiðjanna alls staðar að af landinu kemur saman til að efla samstarf, miðla þekkingu og þróa nýjar hugmyndir.
Á dagskránni í ár voru m.a. kynningar á nýjustu tækjum, málmfræsing, forritun LED-borða, mótagerð í nýjum tækjum og þvívíddarskönnun. Sérstök áhersla var lögð á sjálfvirk kerfi þar sem nýtt vökvunar- og hitastýringarkerfi fyrir gróðurhús var m.a. til umfjöllunar. Kerfið verður sett upp í nýju gróðurhúsi Fab Lab Húsavík í portinu við Stéttina á næstu dögum. Fyrirhugað er að kenna notendum smiðjunnar að smíða eigið gróðurhús og setja kerfið upp í því á námskeiðum næsta vetrar.
Stemningin á Húsavík var frábær og þjónusta bæjarins nýtt til fulls að dagskrá lokinni. Gestir skelltu sér í sjóböðin, heimsóttu Húsavík Öl og renndu fyrir fisk á sjóstöng sem gaf viðburðinum skemmtilega tilbreytingu.
Hlutverk og markmið Fab Lab smiðjanna
Fab Lab (Fabrication Laboratory) smiðjurnar eru hluti af alþjóðlegu neti og veita almenningi aðgang að stafrænum tæknibúnaði og nýsköpunarþekkingu. Markmið Fab Lab Ísland er að gera fólki kleift að raungera hugmyndir með hjálp tölvustuddrar hönnunar og stafrænnar tækni. Á Íslandi gegna Fab Lab smiðjurnar mikilvægu hlutverki í að styðja við frumkvöðla, nemendur, listafólk og atvinnulíf með því að bjóða aðstöðu, leiðsögn og þekkingu til að þróa og prófa nýjar lausnir. Þær auka aðgengi að nýsköpun og gera landsbyggðinni kleift að taka virkan þátt í stafrænni þróun.





