Í dag fór fram ársfundur Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins sem er samstarfsvettvangur í fullorðins- og starfsmenntun á íslenskum vinnumarkaði.
Í tilefni fundarins eru fræðslu- og símenntunarmiðstöðvar landsins á hverju ári beðnar um að tilnefna einstaklinga sem fyrirmyndir í framhaldsfræðslu. Að venju er horft til einstaklinga sem hafa tekið þátt í úrræðum fræðslu- og símenntunarmiðstöðvanna sem starfa í gegnum samninga og fjármögnun frá Fræðslumiðstöðinni.
Það er okkur mikil ánægja að segja frá því að fyrir valinu varð að þessu sinni Sunna Rae Isaksen George sem hefur sýnt einstaka elju og metnað í námi og verið öðrum góð fyrirmynd í því að nýta tækifæri til náms og þróunar í gegnum framhaldsfræðsluna.
Sunna ólst upp bæði á Íslandi og Nýja-Sjálandi og því var námsferill hennar óhefðbundinn að því leyti og reyndist erfitt að fá fyrra nám metið innan íslenska skólakerfisins. Þegar hún flutti til Húsavíkur leitaði hún til Þekkingarnetsins eftir ráðgjöf um framhaldsnám. Þar lauk hún raunfærnimati fyrir leikskólaliða og stuðningsfulltrúa og útskrifaðist svo í lok árs 2021 úr námi í þeim greinum. Það gerði hún á sama tíma og hún átti sitt fyrsta barn. Í kjölfarið starfaði Sunna á dvalarheimilinu Hvammi og leikskólanum Grænuvöllum á Húsavík. Í dag stundar hún kennaranám í Háskólanum á Akureyri og sér fyrir sér framtíð í starfi með börnum.
Sunna er frábær fyrirmynd um seiglu og áræðni og sýnir hvernig menntun getur opnað dyr að nýjum möguleikum.
Þekkingarnetið óskar Sunnu innilega til hamingju með viðurkenninguna og þakkar henni fyrir að vera öðrum hvatning í námi.