Jólalögin og Gefum íslensku séns

Föstudaginn 28. nóvember stóð Þekkingarnet Þingeyinga fyrir viðburði í Safnahúsinu á Húsavík í samstarfi við fjölmenningarfulltrúa Norðurþings.

Viðburðurinn var hluti af dagskránni, Jólabærinn minn. Um var að ræða samveru og jólalaga samsöng á íslensku og notalega stemningu þar sem allir gátu tekið þátt á sínum forsendum.Við þökkum öllum þeim sem komu og tóku þátt.

Þá var kynnt til leiks hugtakið almannakennari, en almannakennarar eru einstaklingar í nærumhverfinu sem styðja innflytjendur í að nota íslensku í daglegum samskiptum. Gestir Safnahúsins og margir þeir sem vinna við þjónustu í bænum fengu barmmerki og upplýsingar um átakið.

Verkefnið byggir á hugmyndafræði og efni átaksins Gefum íslensku séns sem má finna á vefsíðunni: www.gefumislenskusens.is

Áherslur þess eru að tungumál lærist í samskiptum og með því að fólk sýni þolinmæði, hlusti, endurtaki og skapi aðstæður til notkunar íslensku:

…„að stuðla að auknum möguleikum fólks í notkun íslensku á sem víðtækastan og fjölbreyttastan hátt, að fólk sem lærir málið, sama hvar á vegi það er statt, fái stuðning og skilning þeirra sem hafa vald á íslensku.“

Næsti viðburður verður 16. desember kl. 16 -18:30 á Stéttinni. Þá verður boðið upp á tónlistarbingó, huggulegheit, föndur og gott spjall á íslensku um jólahefðir.

Verkefnið er stutt af Uppbyggingarsjóði SSNE.