KRAKKAKRUBBUR – Skapandi hugmyndasmiðja fyrir börn

Föstudaginn 20. mars verður haldinn einstaklega skemmtilegur viðburður fyrir börn í Hraðinu.

Um er að ræða hugmyndasmiðju fyrir börn sem ber heitið KRAKKAKRUBBUR og er hluti af KRUBBI hugmyndahraðhlaupi. Smiðjan er í höndum hugmyndasmiðanna Svövu Bjarkar Ólafsdóttur og Ninnu Þórarinsdóttur, sem leiða börnin í gegnum skapandi og skemmtilegt ferli þar sem áhersla er lögð á að efla hugmyndaflug, forvitni og lausnamiðaða hugsun.

Viðburðurinn er haldinn í samstarfi við Borgarhólsskóla og munu nemendur í 4.bekk taka þátt. Þeir munu fá að kynnast því hvernig hugmyndir verða til og hvernig hægt er að þjálfa skapandi hugsun. Meðal þess sem þau munu prófa er að:

  • sækja innblástur úr umhverfinu
  • þróa og móta hugmyndir
  • vinna saman í hugmyndavinnu
  • búa til einfaldar frumgerðir út frá hugmyndum sínum

Markmiðið er að sýna börnunum að góðar hugmyndir geta komið hvaðan sem er og að allir geta verið hugmyndasmiðir.

Allir þátttakendur fá að gjöf bókina „Frábær hugmynd“ eftir þær Svövu Björk, Ninnu Margréti og Evu Rún sem standa á bak við fræðsluverkefnið Hugmyndasmiði. Bókin hefur fengið mjög góða dóma og hvetur börn áfram til að láta hugmyndir sínar verða að veruleika. Að sögn Svövu er markmiðið að gefa börnum kunnáttu, verkfæri og trú á eigin getu til að breyta heiminum í gegnum nýsköpun. Enda eru krakkar frábærir hugmyndasmiðir og framtíðin er þeirra.

Krakkakrubbur er mikilvæg viðbót við Krubb hugmyndahraðhlaupið, þar sem meðal annars verður unnið með spurninguna hvernig við getum gert bæinn okkar að betra samfélagi fyrir börn. Niðurstöður hugmyndavinnu barnanna verða kynntar í Krubbnum og verða þannig mikilvægt framlag og innblástur fyrir áframhaldandi hugmyndavinnu þátttakenda.

Meiri upplýsingar um Krubb og Krakkakrubb má finna á heimasíðu Hraðsins hradid.is/krubbur.