Litlir hugmyndasmiðir með stórar lausnir

Föstudaginn 20. mars fór fram einstaklega skemmtilegur viðburður í Hraðinu þegar Krakkakrubbur var haldinn í tengslum við Krubb hugmyndahraðhlaup. Krakkakrubbur er hugmyndasmiðja fyrir börn þar sem lögð er áhersla á að efla hugmyndaflug, forvitni og lausnamiðaða hugsun. Smiðjan var í höndum hugmyndasmiðanna Svövu Bjarkar Ólafsdóttur og Ninnu Þórarinsdóttur sem leiddu börnin í gegnum lifandi og […]
Hugmyndastormur á Húsavík

Krubbur hugmyndahraðhlaup fór fram á Stéttinni á Húsavík dagana 20.–21. mars, þar sem þátttakendur og gestir fylltu húsið af krafti, sköpunargleði og nýjum hugmyndum. Á tveimur dögum unnu þátttakendur að lausnum við tvær áskoranir: Betri bær fyrir börn og Opni glugginn. Samhliða fengu þeir þjálfun í nýsköpunarhugsun, leiðsögn frá reynslumiklum mentorum og stuðning við að […]