Litlir hugmyndasmiðir með stórar lausnir

Föstudaginn 20. mars fór fram einstaklega skemmtilegur viðburður í Hraðinu þegar Krakkakrubbur var haldinn í tengslum við Krubb hugmyndahraðhlaup.

Krakkakrubbur er hugmyndasmiðja fyrir börn þar sem lögð er áhersla á að efla hugmyndaflug, forvitni og lausnamiðaða hugsun. Smiðjan var í höndum hugmyndasmiðanna Svövu Bjarkar Ólafsdóttur og Ninnu Þórarinsdóttur sem leiddu börnin í gegnum lifandi og skemmtilegt ferli þar sem þau fengu að kynnast því hvernig hugmyndir verða til og þróast.

Viðburðurinn var haldinn í samstarfi við Borgarhólsskóla og tóku nemendur í 4. bekk þátt. Í smiðjunni fengu þau meðal annars að sækja innblástur úr umhverfi sínu, þróa og móta hugmyndir, vinna saman og búa til einfaldar frumgerðir. Markmiðið var að sýna að góðar hugmyndir geta komið hvaðan sem er og að allir geta verið hugmyndasmiðir.

Hugmyndir barnanna urðu að veruleika

Krakkarnir stóðu sig með eindæmum vel og sýndu mikla sköpunargleði, forvitni og frumkvæði. Fjöldi spennandi hugmynda kom fram um hvernig mætti gera bæinn betri fyrir börn og var greinilegt að þörf er á fjölbreyttari leik- og áningarstöðum í bænum.

Sérstaka athygli vöktu frumgerðir barnanna sem lifðu áfram inn í Krubb hugmyndahraðhlaupið sjálft. Þar urðu þær að innblæstri fyrir fullorðna þátttakendur og þróuðust áfram í vel útfærðar keppnishugmyndir.

Ein þeirra, Hjarta leiks og gleði eftir Silju Rún Reynisdóttur, hlaut fyrstu verðlaun í Krubbi. Hugmyndin byggir beint á hugmyndum barnanna um leikvelli og var útfærð sem vistvænt leiksvæði í Skrúðgarðinum. Í kynningu sinni vísaði Silja sérstaklega í ákall barnanna um fleiri og betri leiksvæði í bænum.

Börn sem hugmyndasmiðir framtíðarinnar

Allir þátttakendur fengu að gjöf bókina Frábær hugmynd eftir þær Svövu Björk, Ninnu Margréti og Evu Rún, sem standa að baki fræðsluverkefninu Hugmyndasmiðum. Bókin hefur hlotið afar góðar viðtökur og er ætlað að hvetja börn til að þróa eigin hugmyndir og láta þær verða að veruleika.

Markmiðið með Krakkakrubbi er að veita börnum verkfæri, þekkingu og trú á eigin getu til að hafa áhrif á sitt nærumhverfi. Það markmið endurspeglaðist skýrt í vinnu dagsins, þar sem börnin sýndu að þau búa yfir bæði hæfileikum og vilja til að móta framtíðina.

Krakkakrubbur er mikilvæg viðbót við Krubb hugmyndahraðhlaupið og undirstrikar mikilvægi þess að fá sjónarhorn yngstu kynslóðarinnar inn í umræðu um samfélagsþróun. Viðburðurinn hefði ekki verið mögulegur án góðs samstarfs við kennara Borgarhólsskóla, sem komu með nemendur og tóku með opnum huga þátt í verkefninu. Þekkingarnetið þakkar þeim kærlega fyrir samstarfið og hlakkar til frekara samstarfs í framtíðinni.