Ný stjórn Þekkingarnetsins

Mánudaginn 27. apríl sl. var aðalfundur Þekkingarnets Þingeyinga haldinn í samræmi við skipulagsskrá stofnunarinnar.

Á dagskrá voru hefðbundin aðalfundarstörf og lögðu stjórnendur fram ársskýrslu ásamt ársreikningi fyrir undangengið fjárhagsár og áætlun um starfsemi komandi árs, líkt og kveðið er á um í skipulagsskrá. Einnig var farið yfir ársskýrslu stjórnar og kynntar tilnefningar til stjórnarsetu.

Samkvæmt skipulagsskrá sitja fimm fulltrúar í stjórn Þekkingarnetsins, tilnefndir til tveggja ára í senn. Við skipan stjórnar er lögð áhersla á að endurspegla meginstarfssvið stofnunarinnar; símenntun, rannsóknir, háskólaþjónustu og nýsköpun. Tilnefningar til stjórnar berast frá fjölbreyttum aðilum, stéttarfélögum eða atvinnurekendum, háskólasamfélaginu, nýsköpunargeiranum, framhaldsskólum og sveitarfélögum á starfssvæði Þekkingarnetsins.

Á fundinum var eftirfarandi stjórn skipuð:

·      Jón Höskuldsson– (varam. Sigurður Þór Guðmundsson)

·      Freyr Friðfinnsson (varam. Atli Björgvinsson)

·      Halldór Jón Gíslason (varam. Sigurbjörn Árni Arngrímsson)

·      Sæunn Stefánsdóttir (varam. Rannveig Björnsdóttir)

·      Yngvi Ragnar Kristjánsson (varam. Aneta Potrikus) 

Að loknum aðalfundi kaus ný stjórn Jón Höskuldsson sem næsta formann stjórnar.
Stjórnendur Þekkingarnetsins lýsa yfir ánægju með nýja stjórn og hlakka til samstarfsins.