Erum við að leita að þér? 

Við auglýsum eftir öflugum og áhugasömum náms- og starfsráðgjafa. Um er að ræða fjölbreytt starf í fagteymi þar sem unnið er náið með einstaklingum, atvinnulífi og fræðsluaðilum á starfssvæði Þekkingarnetsins. Viðkomandi mun taka þátt í áframhaldandi uppbyggingu fólks og atvinnulífs á kraftmiklu starfssvæði Þekkingarnetsins. 
 
Starfið og vinnustaðurinn: 

  • Fjölbreytt og dýnamískt starf í öflugu fagteymi 
  • Fjölskylduvænt og líflegt starfsumhverfi 
  • Sveigjanlegt starfshlutfall 70–80%, með möguleika á auknu starfshlutfalli 
  • Tækifæri til faglegs vaxtar og þróunar 
  • Þátttaka í verkefnum með það að markmiði að efla samfélagið og einstaklinga þess 
  • Þekkingarnetið er miðstöð símenntunar, rannsókna, háskólanáms og nýsköpunar á NA-horni landsins innan Þingeyjarsýslna. 
  • Starfsstöðvar eru á Stéttinni Norðurþingi, Kistunni Langanesbyggð og Gíg Þingeyjarsveit 

Helstu verkefni fagteymis: 

  • Náms- og starfsráðgjöf fyrir einstaklinga og hópa 
  • Skráning gagna og utanumhald 
  • Aðstoð til  einstaklinga í tengslum við eflingu styrkleika, greiningu áhugasviða og markmiða 
  • Upplýsingagjöf 
  • Umsjón og utanumhald raunfærnimats 
  • Umsjón og skipulagning námsleiða og námskeiða 
  • Ráðgjöf varðandi starfsþróun 
  • Þarfagreiningar og þróunarverkefni í samstarfi við atvinnulífið 
  • Þátttaka í samráði og samstarfi um ráðgjöf í fullorðinsfræðslu á landsvísu 
  • Önnur tilfallandi verkefni eftir því sem aðstæður kalla á 

Hæfniskröfur 

  • Starfsréttindi sem náms- og starfsráðgjafi eða önnur menntun sem styrkir fagteymið, t.d. á sviði félagsráðgjafar 
  • Þekking á íslensku menntakerfi og vinnumarkaði 
  • Reynsla af ráðgjöf, kennslu, verkefnastjórn eða símenntun er kostur 
  • Góð samskiptahæfni og færni í upplýsingagjöf  
  • Frumkvæði og sjálfstæði í starfi  
  • Góð hæfni til teymisvinnu 
  • Skipulögð og fagleg vinnubrögð 
  • Mjög góð færni í íslensku og ensku, bæði rituðu og töluðu máli 
  • Góð almenn tölvufærni og hæfni til að tileinka sér nýjungar 

Umsóknarfrestur er til og með 26. maí 

Upplýsingar um starfið veitir Hildur Halldórsdóttir, forstöðumaður Þekkingarnets Þingeyinga. Umsóknum er skilað í gegnum alfred.is.  Með umsókn skal fylgja ferilskrá með upplýsingum um umsagnaraðila, kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda.