Fulltrúar Hraðsins tóku nýverið þátt í nýsköpunarráðstefnunni TONIK sem haldin var í Þórshöfn í Færeyjum. Ráðstefnan er í fremstu röð nýsköpunarviðburða á Norðurlöndunum og var afar vel sótt að þessu sinni með yfir 700 gesti, fyrirlesara og aðra þátttakendur sem komu víða að.

Hraðið var hluti af öflugum hópi frá Norðurlandi eystra, þar sem saman komu fulltrúar frá Hraðinu, Drift EA og SSNE, ásamt fimm glæsilegum frumkvöðlateymum af svæðinu: Nanna Lín, Grænafl, Unnur Verkbókhald, Quality Console og Sea Thru. Öll teymin tóku þátt í pitch-keppni TONIK og stóðu sig afar vel. Þau kynntu verkefnin sín af öryggi og metnaði fyrir alþjóðlegum gestum, fjárfestum og öðrum áhugasömum.

Eitt af því sem stóð upp úr var sameiginlegur viðburður sem Hraðið, Drift EA og SSNE héldu á ráðstefnunni. Þar fengu frumkvöðlarnir að kynna verkefnin sín með stuttum kynningum og í kjölfarið myndaðist lífleg og skemmtileg tengslamyndun. Viðburðurinn var vel sóttur og áhuginn á því sem er að gerast á Norðurlandi var greinilegur. Hraðið lagði áherslu á að kynna HönnunarÞingið og áherslur þess í ár. Gaman var að sjá hversu margir höfðu heyrt af hátíðinni og voru áhugasamir um að koma og taka þátt.

Hópurinn heimsótti einnig spennandi fyrirtæki í Færeyjum til að kynna sér nýsköpun í starfandi fyrirtækjum. Meðal þess sem var skoðað voru sjávarútvegsfyrirtæki og önnur fyrirtæki með hátæknilausnir tengdar matvælageymslu. Þessar heimsóknir gáfu góða innsýn í hvernig nýsköpun og tækni eru nýtt afl í atvinnulífi Færeyinga.

Það sem situr þó sterkast eftir, er hversu mikil gróska er í nýsköpun og stoðkerfi hennar á Norðurlandi eystra. Samstarf Hraðsins, Drift EA og SSNE hefur eflst verulega á undanförnum mánuðum og það er farið að skila sér í öflugum teymum, meiri sýnileika og sterkari tengingum út á við. TONIK ferðin var skemmtileg staðfesting á því að við erum á réttri leið og að það sem er að gerast hér heima vekur athygli.

Við komum heim full af innblæstri og nýjum tengslum. Svæðið okkar er fullt af spennandi hugmyndum og orku sem við hlökkum til að sjá vaxa og dafna á næstu misserum.