Þekkingarnet Þingeyinga auglýsir eftir öflugum verkefnastjóra á sviði símenntunar á starfsstöð stofnunarinnar á Húsavík. Leitað er eftir einstaklingi sem hefur góða samskiptahæfni, er skapandi í hugsun og býr yfir frumkvæði og sjálfstæði í störfum. Um er að ræða fjölbreytt og skemmtilegt starf í öflugu teymi og í líflegu umhverfi Stéttarinnar.
Helstu verkefni fela meðal annars í sér:
- Umsjón og þróun símenntunar- og fræðsluverkefna
- Framkvæmd námskeiða og viðburða
- Gerð fræðsluáætlana og þarfagreininga
- Umsjón með þróunar- og rannsóknarverkefnum, m.a. á sviði fjölmenningar og samfélagsþróunar
- Samstarf við atvinnulíf, sveitarfélög og fræðsluaðila
- Verkefnastjórnun, utanumhald og skýrslugerð
- Umsóknir um samstarf og fjármögnun verkefna í gegnum innlenda og erlenda sjóði
- Teymisvinna í fjölbreyttum verkefnum
Hæfni og menntun:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi
- Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
- Reynsla af verkefnastjórnun
- Reynsla af fjölmenningarverkefnum hvers konar er kostur
- Drifkraftur og frumkvæði í starfi
- Þjónustulund og þolinmæði
- Góð færni í samskiptum og samstarfi
- Þekking á kennslu og fullorðinsfræðslu er kostur
- Geta til að halda utan um mörg verkefni samtímis
- Gott vald á íslensku og ensku
Umsóknarfrestur er til og með 31. maí. Öll áhugasöm eru hvött til að senda ferilskrá og kynningarbréf með umsókn til alfred.is.
Upplýsingar um starfið veitir Hildur Halldórsdóttir í síma 464-5100 og hildur@hac.is