Það er alltaf líflegt í Kistunni í prófatíð, en um leið þarf þó að ganga hljóðlega um. Í vor tóku 15 einstaklingar 32 próf frá 7 skólum í Kistunni. Flest prófin voru frá Háskólanum á Akureyri eða 10 talsins. Á myndinni má sjá Björgvin Val Grant grúfa sig einbeittan yfir póf í siglingafræði, en hann er í námi í skipstjórn frá Verkmenntaskóla Austurlands. Námið stundar hann með fullri vinnu á sjó og er feginn að þurfa ekki að keyra á Neskaupstað til að taka prófin.