Sssshhhh it's a test!

Many students take their spring exams at Kistinn

Það er alltaf líflegt í Kistunni í prófatíð, en um leið þarf þó að ganga hljóðlega um. Í vor tóku 16 einstaklingar 34 próf frá 8 skólum í Kistunni. Flest prófin voru frá Háskólanum á Akureyri eða 10 talsins. Á myndinni má sjá Björgvin Val Grant grúfa sig einbeittan yfir póf í siglingafræði, en hann er í námi í skipstjórn frá Verkmenntaskóla Austurlands. Námið stundar hann með fullri vinnu á sjó og er feginn að þurfa ekki að keyra á Neskaupstað til að taka prófin.