Raunfærnimat

Til styttingar á námi

Raunfærnimat hjá Þekkingarnetinu hefur gengið afar vel og hefur þátttaka verið góð meðal þeirra sem vilja fá reynslu sína og þekkingu metna til náms. Með raunfærnimati gefst einstaklingum tækifæri til að fá færni sem þeir hafa öðlast í starfi metna sem getur stytt námstíma og auðveldað leiðina að formlegri menntun.

Þekkingarnetið hefur núna undanfarið verið með raunfærnimat í þjónustugreinum, sjúkraliða og í samstarfi við Iðuna í iðngreinum.

Á undanförnum árum hafa margir nýtt sér þetta mikilvæga úrræði með góðum árangri. Reynslan sýnir að raunfærnimat getur verið öflug leið fyrir fólk sem hefur aflað sér víðtækrar starfsþekkingar en hefur ekki lokið formlegu námi á viðkomandi starfssviði. Ferlið hefur reynst bæði jákvætt og uppbyggilegt fyrir þátttakendur og skapað ný tækifæri til áframhaldandi náms og starfsþróunar.

Við viljum hvetja alla sem hafa áhuga á raunfærnimati til að hafa samband við okkur og kynna sér möguleikana. Til að geta farið í raunfærnimat þarf viðkomandi að hafa að minnsta kosti þriggja ára starfsreynslu í faginu og hafa náð 23 ára aldri.

Raunfærnimat getur verið fyrsta skrefið í átt að frekara námi, auknum starfsréttindum eða nýjum tækifærum á vinnumarkaði. Starfsfólk okkar veitir nánari upplýsingar um ferlið og aðstoðar áhugasama við að meta næstu skref. Hægt er að hafa samband á hac@hac.is fyrir frekari upplýsingar.

Myndir sem fylgja fréttinni koma frá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins.