Þekkingarnetið hefur á undanförnu ári lagt aukna áherslu á verkefnið Gefum íslensku séns, sem byggir á einfaldri en áhrifaríkri hugmyndafræði: að samfélagið sjálft sé framlenging kennslustofunnar og að hvert og eitt okkar geti tekið að sér hlutverk almannakennara í íslensku.
Verkefnið fellur vel að hlutverki Þekkingarnetsins sem miðstöðvar símenntunar, samfélagsþróunar og inngildingar. Markmiðið er að skapa fleiri tækifæri til að nota íslensku í daglegu lífi og styrkja þannig bæði stöðu tungumálsins og þátttöku fólks af erlendum uppruna í samfélaginu.
Meginhlutverk almannakennarans er að bjóða upp á íslensku í samskiptum, óháð hæfnistigi viðmælandans. Slík tækifæri skapast á hverjum degi, í verslunum, á veitingastöðum, á vinnustöðum, í félagsstarfi og öðrum almannarýmum. Almannakennari sýnir þolinmæði, talar skýrt og hvetjandi, endurtekur þegar þörf krefur og hjálpar til við að útskýra orð og hugtök. Mikilvægast er þó að hann sé tilbúinn til að eiga samskipti á íslensku og sýni virðingu fyrir þeirri viðleitni sem felst í því að læra nýtt tungumál.
Verkefnið minnir okkur á að bjóða íslenskuna alltaf fyrst. Íslenska er lykill að þátttöku í samfélaginu og flestir sem setjast hér að vilja læra tungumálið og verða virkir þátttakendur í íslensku samfélagi. Á sama tíma hafa samfélagsbreytingar og aukin alþjóðavæðing leitt til þess að enska hefur orðið meira áberandi í daglegum samskiptum. Með sameiginlegu átaki getum við hins vegar skapað fleiri tækifæri til að nota íslensku og styrkt stöðu hennar til framtíðar.
Þekkingarnetið hefur samþætt hugmyndafræði Gefum íslensku séns inn í fjölmörg verkefni sín, meðal annars íslenskukennslu fyrir innflytjendur, verkefnið Farkennarinn – íslenska á vinnustað og ýmsa samfélagsviðburði sem stuðla að aukinni málnotkun og tengslamyndun. Þar má nefna jólasamsöng, spilakvöld á Stéttinni og fjölbreyttar samverustundir þar sem fólk hittist, kynnist og æfir íslensku í óformlegu umhverfi.
Í framhaldi af þessu hyggst Þekkingarnetið halda opið hús og kynningardag þann 3. september. Þar gefst félagasamtökum, menningarstarfsemi, íþróttafélögum og öðrum samfélagsaðilum tækifæri til að kynna starfsemi sína, hitta íbúa og skapa ný tengsl. Markmiðið er að auðvelda fólki að finna sér stað í samfélaginu, kynnast þeim fjölbreyttu tækifærum sem standa til boða og hvetja til þátttöku í félags-, menningar- og tómstundastarfi. Viðburðurinn er jafnframt liður í því að efla samfélagslega þátttöku, stuðla að inngildingu og skapa fleiri tækifæri til samskipta á íslensku í daglegu lífi.
Kjarninn í þessum viðburðum er einfaldur: að skapa vettvang fyrir samtal. Þegar fólk hittist og talar saman verða til tækifæri til náms, vináttu og gagnkvæms skilnings. Slíkir viðburðir stuðla ekki aðeins að aukinni íslenskukunnáttu heldur einnig að inngildingu fólks af erlendum uppruna og sterkari samfélagstengslum.
Gefum íslensku séns er því mikilvæg viðbót við formlegt íslenskunám. Verkefnið undirstrikar að tungumál lærist ekki eingöngu í kennslustofunni heldur í samskiptum fólks á milli. Þar lifir íslenskan, þróast og styrkist í samtalinu, samfélaginu og samverunni.