Grapewine! Brush! Scuff! Þau sem sækja línudansnámskeið á Þórshöfn á þriðjudagskvöldum vita nákvæmlega hvað þessi hugtök þýða. Undir dúndrandi sveitatónlist má sjá flotta danstakta sem eflaust verða nýttir á næsta þorrablóti. Hér er verið að æfa dans sem var frumsaminn af þátttakendum. Námskeiðið tekur yfir fögur þriðjudagskvöld en það er hún Urður Steinunn Önnudóttir Sahr danskennari frá Valkyrju danslistarskóla á Vopnafirði sem keyrir einu sinni í viku til okkar yfir vafasama vegi til að kenna okkur réttu sporin.
Ef þið hafið hugmynd að námskeiði þá hvetjum við ykkur til að hafa samband við okkur á hac@hac.is eða á samfélagsmiðlum.