Svöl og sveitó

Grapewine! Brush! Scuff! Þau sem sækja línudansnámskeið á Þórshöfn á þriðjudagskvöldum vita nákvæmlega hvað þessi hugtök þýða. Undir dúndrandi sveitatónlist má sjá flotta danstakta sem eflaust verða nýttir á næsta þorrablóti. Hér er verið að æfa dans sem var frumsaminn af þátttakendum. Námskeiðið tekur yfir fögur þriðjudagskvöld en það er hún Urður Steinunn Önnudóttir Sahr […]
Dagur íslenskrar tungu

Í dag, 16. nóvember, fögnum við Degi íslenskrar tungu. Dagurinn er kærkomið tækifæri til að minna á mikilvægi íslenskunnar, ekki síst fyrir þau sem eru að læra tungumálið og vilja verða virkari þátttakendur í íslensku samfélagi. Íslenskukennsla fyrir íbúa af erlendum uppruna er mikilvægur þáttur í því að stuðla að virkri samfélagsþátttöku, auknum tækifærum á […]