Þekkingarnet Þingeyinga fer aldrei í sumarfrí, þó vissulega fari starfsmenn í sitt orlof eins og aðrir. Alla tíð hefur verið lögð áhersla á það að stofnunin sé starfrækt allt árið og geti sinnt sínum hlutverkum hvenær sem á þarf að halda. Starfsemi Þekkingarnetsins er árstíðabundin að mörgu leyti. Hefðbundinn tímarammi skólaársins einkennir starfsemi símenntunarsviðs og þjónustu við háskólanema, þar sem með upphafi haustmisseris í ágústmánuði kemur fram eftirspurn þjónustu við námsfólk og einnig lögð drög að framboði og námsþjónustu í fullorðinsfræðslunni. Vinna við rannsóknaverkefni er hins vegar gjarnan í öðrum takti sem minna er háð skólastarfinu. Á sumrin fer gjarnan fram öflun gagna til rannsóknaverkefna, t.d. viðhorfsrannsókn Þekkingarnetsins þetta sumarið þar sem könnuð eru áhrif kvikmyndagerðar á komur erlendra ferðamanna.
Komandi haust verður margt um að vera undir hinni víðu regnhlíf Þekkingarnetsins, enda upphaf haustmisseris framundan í símenntunarstarfinu og háskólanemar gera vart við sig þegar líður á ágústmánuð til að leita í þjónustu til vetrarins. Hraðið – miðstöð nýsköpunar hefur marga aðila í hýsingu með vinnuaðstöðu og eru ávallt einhverjar breytingar á hverju hausti, þar sem ný fyrirtæki eða einstaklingar bætast í hópinn. Sama gildir um Kistuna á Þórshöfn og Gíg í Mývatnssveit, þar sem ekki er óalgengt að á haustin verði breytingar í hópi þeirra sem leigja aðstöðu í klösunum. Þá er um þessar mundir unnið að undirbúningi HönnunarÞings (DesignThing), sem er hönnunarhátíð Hraðsins, haldin í októberbyrjun.

[Mynd: ChatGPT]