Ársfundur Samtaka Þekkingarsetra haldinn á Stéttinni

Ársfundur Samtaka Þekkingarsetra var haldinn á Stéttinni dagana 27.-28. ágúst sl. Í samtökunum eru sjö þekkingarsetur á landsbyggðinni, Austurbrú, Nýheimar þekkingarsetur, Textílmiðstöð Íslands, Þekkingarsetur Suðurnesja, Háskólafélag Suðurlands, Þekkingarnet Þingeyinga og Þekkingarsetur Vestmannaeyja. ÞÞ hefur gegnt formennsku í stjórn samtakanna síðastliðið ár og var í hlutverki gestgjafa að þessu sinni.

Fyrri daginn var vinnufundur með forstöðumönnum og starfsfólki setranna þar sem starfsemi og aðstaða Stéttarinnar var kynnt auk þess sem farið var yfir hefðbunda liði eins og samningamál, samstarfsverkefni ofl. Síðari daginn var aðalfundur samtakanna. Að lokinni dagskrá var gestum boðið í gönguferð um bæinn sem endaði í sjóböðunum.

Góð mæting var á fundinn og þökkum við öllum kærlega fyrir komuna og fyrir ánægjulega samveru þessa daga.