NICHE 2 – Upphafsfundur í Erasmus+ samstarfsverkefni sem Þekkingarnetið leiðir

Þekkingarnet Þingeyinga stýrði rafrænum upphafsfundi í NICHE 2 – Nurturing Intangible Cultural Heritage for Entrepreneurship, sem er nýtt Erasmus+ samstarfsverkefni á sviði starfsmenntunar 18. nóvember 2024

Þetta nýja verkefni byggir á NICHE (2020-2022) sem hafði það markmið að efla frumkvöðlastarfsemi á sviði óáþreifanlegs menningararfs. Verkefnið fékk viðurkenninguna “bestu starfsvenjur” og náði mikilli útbreiðslu, 143.150 einstakar heimsóknir á heimsíðu verkefnisins (nicheproject.eu) og 5.200 manns fengu þjálfun á netinu.

Markmið NICHE 2 er að þróa og veita þjálfun fyrir einstaklinga sem nýta sér óáþreifanlegan menningararf í sínu starfi til að stuðla að sjálfbærum vexti þessarar starfsemi. Markmið verkefnisins er að auka fagmennsku með því að styðja við þá færni sem hefur verið skilgreind í Evrópska hæfnirammanum um sjálfbærni sem og stafræna færni.

Í NICHE 2 eru 7 samstarfsaðila frá 6 löndum: Króatíu, Frakklandi, Íslandi, Ítalíu, Belgíu og Spáni.

Almenn markmið verkefnisins eru að:

  • Stuðla að samkeppnishæfni og vexti þeirrar starfsemi sem nýtir sér óáþreifanlegan menningararf með þróun faglegrar hæfnilýsingar sem felur í sér umhverfis- og græna færni
  • Efla hæfni fagfólks og frumkvöðla sem vinna með óáþreifanlegan menningararf með þróun námskeiða um græna og sjálfbærni þekkingu, hæfni og færni sem byggja á GreenComp-rammanum

Markhóparnir eru:

  • Fagfólk, sem vinnur með, annaðhvort tímabundið eða til frambúðar, óáþreifanlegan menningararf
  • Starfsmenn og samtök sem vinna með menningararf í sinni starfsemi
  • Einstaklingar sem geta nýtt sér óáþreifanlegan menningararf til að þróa eigin viðskiptahugmynd og frumkvöðlastarfsemi
  • Fagfólk á sviði óáþreifanlegs menningarstarfs sem starfar hjá samtökum eða stofnunum, t.d. svæðisbundnum samtökum
  • Fagfólk í starfsmenntun og starfsmenntastofnanir (sem bjóða upp á formlega og óformlega fræðslu)

Á fjarfundinum fengu samstarfsaðilarnir tækifæri til að kynna sig og fyrsti hluti fundarins voru stuttar kynningar á þeim stofnunum sem munu vinna saman að þróun NICHE 2. Samstarfsaðilarnir ræddu nánari útfærslu á áætlun verkefnisins og skilgreindu nákvæmlega hlutverk og ábyrgð á framkvæmd allra verkefnisþátta. Eftir að hafa farið yfir öll helstu markmið og leiðir að þeim var merki verkefnisins valið og vefslóð fyrir heimasíðu verkefnisins sem verður birt innan tíðar.