Í dag áttum við á Þekkingarneti Þingeyinga góða stund með nemunum okkar úr námsleiðinni Færni á vinnumarkaði, fjölskyldum þeirra, vinnustaðatengiliðum, kennurum og tengilið Vinnumálastofnunar. Tilefnið var að þrír nemendur voru að ljúka námi í námsleiðinni Færni á vinnumarkaði.
Námskráin Færni á vinnumarkaði er afrakstur verkefnis á vegum Félags- og vinnumarkaðsráðuneytis sem snýst um að auka náms- og starfstækifæri fyrir fatlað fólk. Verkefnið er unnið í samstarfi Fjölmenntar, Vinnumálastofnunar og Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins og lítur að námi og þjálfun til að efla færni nemanna til atvinnuþátttöku fyrir vinnumarkaðinn.
Kennsla hófst 16. september og skiptist í 70 klst. bóklegt nám og 110 klst. vinnustaðanám inn á vinnustöðum. Fimm nemendur hófu nám en vegna óviðráðanlegra orsaka þurftu tveir þeirra að hætta. Dögg Stefánsdóttir var aðalkennari á námsleiðinni.
Þau þrjú sem útskrifuðust í dag, sinntu náminu með eindæmum vel, mæting og virkni var til fyrirmyndar og með því að uppfylla öll hæfniviðmið í náminu útskrifuðust þau í dag með Fagbréf atvinnulífsins.
Við á Þekkingarneti Þingeyinga erum mjög stolt af því hvernig til tókst með framkvæmd námsins og óskum þessum frábæru útskriftarnemum okkar enn og aftur innilega til hamingju með áfangann.