Í gær héldum við fjölmenningarlegan viðburð á Þórshöfn þar sem markmiðið var að kynna hina fjölbreyttu menningu sem er að finna í okkar sveitarfélagi. Viðburðurinn er hluti af verkefninu Menningarmiðlun og styrktur af Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra. Íbúum var boðið á Holtið veitingastað, sem framreiddi dýrindis grænmetissúpu og nýbakað brauð meðan sjö íbúar voru með fjölbreyttar og skemmtilegar kynningar. Skemmtilegur og notalegur viðburður þar sem við kynntumst betur okkar frábæru íbúum. Viðburðurinn var styrktur af Uppbyggingarsjóði SSNE.






