Fróðlegur og notalegur viðburður í Skjólbrekku
Hinn 13. nóvember síðastliðinn var haldinn viðburður í Skjólbrekku klukkan 18. Um 30 manns komu saman til að hlusta, deila sögum og reynslu úr lífinu í afslöppuðu umhverfi. Boðið var upp á súpu með nýbökuðu brauði svo enginn fór svangur heim.
Framsögufólk á viðburðinum voru þau Matteo Gervasi, Carmen Ramos Björnsson, Bergþóra Kristjánsdóttir, Auður Aðalsteinsdóttir og Bianca Peregger. Þau fjölluðu um ýmis málefni, sögðu t.d. draumastarfinu, áhugamálum, frá því hvað leiddi þau hingað, frá sögu sveitarinnar, frá fegurðinni í því smáa, frá handverki og list sinni, frá fjölskyldusögunni sinni, matarhefðum, lífsskoðunum, fortíðinni, vinnunni sinni, frá tilviljunum og ákvörðunum….Umræðuefnin voru fjölbreytt og kvöldið sýndi mikilvægi þess að deila sögu sinni með öðrum.
Að erindunum loknum spunnust góðar umræður á borðunum. Margir gestanna höfðu ekki hist áður þrátt fyrir að hafa búið í sveitarfélaginu um tíma. Viðburðurinn gaf fólki kærkomið tækifæri til að kynnast betur og spjalla og styrkja tengsl milli íbúa.. Hann tókst vel í heildina og er stefnt að því að halda fleiri slíka viðburði í framtíðinni.
Viðburðurinn var hluti af verkefninu Menningarmiðlun sem var styrkt af Uppbyggingarsjóði SSNE.