Nú þegar bærinn fyllist af ferðamönnum og þjónustuaðilar setja sig í stellingar væri ekki vitlaust að kíkja á niðurstöður könnunar meðal erlendra ferðamanna sem Þekkingarnetið framkvæmdi á Húsavík sumarið 2024. Að skilja væntingar og upplifanir ferðamanna er mikilvægt til að geta boðið framúrskarandi þjónustu.
Við hvetjum ferðaþjónustuaðila og aðra til að kynna sér niðurstöðurnar og erum tilbúin í spjall með þeim sem hafa spurningar eða athugasemdir.
Skýrsluna má finna á heimasíðu Þekkingarnetsins: https://hac.margmidlun.is/wp-content/uploads/visitor-survey-Husavik.pdf

