Á hverju ári ræður Þekkingarnetið til sín háskólanema í sumarstörf. Verkefnin eru fjölbreytt og lögð er áhersla á að finna verkefni sem tengjast námi þeirra og veita þeim reynslu á því sviði. Í sumar voru þau Aðalbjörn Jóhannsson og Elín Anna Óladóttir hjá okkur en Aðalbjörn stundar nám í félagsvísindum við Háskólann á Akureyri og Elín í arkitektúr við Listaháskóla Íslands.
Aðalbjörn hefur unnið að umfangsmikilli viðtalsrannsókn meðal innflytjenda í Norðurþingi, með styrk frá Þróunarsjóði innflytjendamála. Markmið rannsóknarinnar er að varpa ljósi á upplifun innflytjenda af lífinu í sveitarfélaginu, hvað gengur vel og hvaða áskoranir blasa við. Verkefnið er unnið í nánu samstarfi við Norðurþing og SSNE og stefnt er að því að niðurstöðurnar geti stuðlað að umbótum í þjónustu og eflt samfélagsvitund á svæðinu.
Elín Anna hefur einbeitt sér að undirbúningi HönnunarÞings, sem haldið verður á Húsavík dagana 26.–27. september. Hátíðin í ár fjallar um mat og fjölbreyttar birtingarmyndir hans í hönnun og nýsköpun. Elín hefur komið að dagskrárgerð, kynningarmálum og öðrum mikilvægum þáttum undirbúningsins. Hún hefur einnig tekið þátt í rannsókninni með Aðalbirni.
Við erum afar þakklát fyrir þeirra framlag, metnað og dugnað í sumar og stolt af því að fá að vinna með svona öflugum einstaklingum.