Viðburðir sem styðja við íslenskunám

Þekkingarnet Þingeyinga hefur á árinu staðið fyrir þremur viðburðum í anda vestfirska verkefnisins „Gefum íslensku séns“ með það markmið að styðja við íslenskunám og skapa vettvang fyrir skemmtilegt spjall allra íbúa. Verkefnið byggir á þeirri hugmynd að tungumál lærist best í samskiptum og að það sé nauðsynlegt að mæta fólki nákvæmlega þar sem það er statt í sínu íslenskunámi.

Viðburðirnir fóru fram í Skjólbrekku í Mývatnssveit og þar komu saman bæði móðurmálshafar og þeir sem eru að læra íslensku og tóku þátt í opnu samtali um daginn og veginn. Hópstjórar leiddu umræðurnar og skapaðist hlýlegt andrúmsloft þar sem allir fengu tækifæri til að nota og æfa málið, tala saman um margt stórt og smátt.

Menningarsjóður KEA styður verkefnið.
Næsti viðburður í röðinni verður haldinn í nóvember og verður nánar auglýstur síðar.