Þau tímamót hafa nú átt sér stað hjá Þekkingarneti Þingeyinga að Óla Halldórssyni forstöðumanni hefur að eigin ósk verið veitt lausn frá störfum frá og með 1. nóvember. Óli tekur þá við nýju starfi sérfræðings á skrifstofu vísinda og háskóla hjá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu, sem hann mun geta fengið flutt norður og sinnt sem óstaðbundnu starfi.
Lilja Berglind Rögnvaldsdóttir er staðgengill forstöðumanns og fer tímabundið með hlutverk stjórnanda stofnunarinnar frá 1. nóvember.
Þekkingarnet Þingeyinga var stofnað árið 2003 eða fyrir 22 árum. Óli Halldórsson hefur verið forstöðumaður frá stofnun, og er lýsandi fyrir hæfileika og trúmennsku hans gagnvart þeim verkefnum sem honum eru falin að allan þann tíma hefur starfsemin eflst og vaxið. Og í dag er Þekkingarnetið orðið hornsteinn í framþróun atvinnulífs, menningar og nýsköpunar. Vill stjórn Þekkingarnetsins koma á framfæri einlægum þökkum til Óla Halldórssonar fyrir gott og einlægt starf allan þennan tíma og óskum við honum farsældar á nýjum vettvangi.