Spennandi starf á sviði símenntunar

Við leitum að öflugum verkefnissstjóra í fullorðinsfræðslu

Þekkingarnet Þingeyinga auglýsir eftir öflugum verkefnastjóra á sviði símenntunar á starfsstöð stofnunarinnar á Húsavík. Leitað er eftir einstaklingi sem hefur góða samskiptahæfni, er skapandi í hugsun og býr yfir frumkvæði og sjálfstæði í störfum. Um er að ræða fjölbreytt og skemmtilegt starf í öflugu teymi og í líflegu umhverfi Stéttarinnar.

Helstu verkefni fela meðal annars í sér: 


  • Umsjón og þróun símenntunar- og fræðsluverkefna
  • Framkvæmd námskeiða og viðburða
  • Gerð fræðsluáætlana og þarfagreininga
  • Umsjón með þróunar- og rannsóknarverkefnum, m.a. á sviði fjölmenningar og samfélagsþróunar
  • Samstarf við atvinnulíf, sveitarfélög og fræðsluaðila
  • Verkefnastjórnun, utanumhald og skýrslugerð
  • Umsóknir um samstarf og fjármögnun verkefna í gegnum innlenda og erlenda sjóði
  • Teymisvinna í fjölbreyttum verkefnum

Hæfni og menntun:

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
  • Reynsla af verkefnastjórnun
  • Reynsla af fjölmenningarverkefnum hvers konar er kostur
  • Drifkraftur og frumkvæði í starfi
  • Þjónustulund og þolinmæði
  • Góð færni í samskiptum og samstarfi
  • Þekking á kennslu og fullorðinsfræðslu er kostur
  • Geta til að halda utan um mörg verkefni samtímis
  • Gott vald á íslensku og ensku 



Umsóknarfrestur er til og með 31. maí. Öll áhugasöm eru hvött til að senda ferilskrá og kynningarbréf með umsókn til alfred.is.
Upplýsingar um starfið veitir Hildur Halldórsdóttir í síma 464-5100 og hildur@hac.is