Þekkingarnetið hlaut nýverið 4.500.000 kr. styrk úr Byggðarannsóknasjóði til að framkvæma verkefnið Getur saga Flateyjar á Skjálfanda og Skála á Langanesi verið gagnleg brothættum byggðum nútímans. – Fortíð, nútíð og framtíð brothættra byggða.
Verkefnið er blönduð eigindleg og megindleg tilviksrannsókn þar sem þróun byggðar í Flatey á Skjálfanda og á Skálum á Langanesi er greind út frá sögulegum heimildum, lýðfræðilegum gögnum og frásögnum þeirra sem tengjast byggðunum ásamt því að þau eru borin saman við þróun einnar brothættrar byggðar.
Ætlunin er að kanna hvort hægt sé að draga lærdóm af sögu Flateyjar og Skála sem hvort tveggja eru byggðir þar sem búseta lagðist af á síðustu öld. Í tilviki Flateyjar reyndi ríkisvaldið að snúa þróuninni við þar með hafnarbótum en í tilviki Skála voru hafnarframkvæmdir fjármagnaðar af einkaaðilum. Hvorugt bar þó árangur til lengri tíma hvað sem kann að skýra það en það er að hluta til viðfangsefni verkefnisins, t.d. að kanna hvort of seint hafi verið farið af stað eða hvort aðrir þættir hafi ráðið för.
Þá er ætlun að bera þróun byggðanna og aðgerðir til björgunar þeim saman við brothætta byggð í nútímanum og þær aðgerðir sem gripið hefur verið til í þeirri viðleitni að snúa byggðaþróun til jákvæðari vegar í þeirri byggð, m.a. með tilliti til mannfjöldaþróunar, tímasetninga á aðgerðum og fleira í þeim tilgangi að kanna hvort það sé eitthvað að læra af sögu Flateyjar og Skála og hvað það sé helst sem geti verið gagnlegt til að ekki fari á sama veg fyrir öðrum byggðum sem nú hafa t.d. tekið þátt í verkefni Byggðastofnunar Brothættar byggðir.
Helena Eydís Ingólfsdóttir, verkefnastjóri á Þekkingarnetinu tók við styrknum á ársfundi Byggðastofnunar sem fram fór á Kirkjubæjarklaustri þann 28. maí síðastliðinn.

Kjartan Ólafsson, formaður stjórnar byggðarannsóknasjóðs afhendir hér Helenu Eydísi Ingólfsdóttur, fulltrúa Þekkingarnetsins styrkinn.

Kjartan Ólafsson, formaður stjórnar byggðarannsóknasjóðs, Hanna Dóra Björnsdóttir, sérfræðingur hjá Byggðastofnun, ásamt fulltrúum þeirra sem hlutu styrk úr sjóðunum að þessu sinni.