Birta Guðlaug Amlin er 27 ára Húsvíkingur ser fór í raunfærnimat árið 2024. Hún vinnur hjá HSN sem sjúkraliði og segir hér aðeins frá sinni reynslu á að fara í raunfærnimat og nám í kjölfarið:
Hvernig raunfærnimat fórstu í?
Ég fór í raunfærnimat fyrir sjúkraliðabrú.
Af hverju valdirðu að fara í raunfærnimat?
Ég hafði unnið við aðhlynningu í sex ár á þeim tíma og fann hvað ég hafði mikinn áhuga á sjúkraliðanáminu. Þess vegna ákvað ég að fara í raunfærnimat til að sjá hversu mikið starfsreynslan mín hafði kennt mér, þar sem markmið mitt var að fara í sjúkraliðann. Vinir mínir höfðu farið í mat og töluðu mjög vel um það og þann árangur sem það gaf þeim.
Hvernig fannst þér ferlið?
Mér fannst það skemmtilegt og mun auðveldara en ég hafði haldið að það yrði. Þetta var alls ekki eins og próf, eins og ég bjóst við. Frekar eins og spjall um reynslu mína og hvernig ég myndi takast á við ákveðnar aðstæður í starfinu.
Hvernig hefur raunfærnimatið nýst þér?
Það hefur nýst mér mjög vel. Raunfærnimatið varð meðal annars til þess að ég útskrifaðist úr sjúkraliðanáminu núna í maí og það nýtist mér mikið í starfi mínu á sjúkradeildinni.
Raunfærnimatið gaf mér einnig mikið sjálfstraust til að halda áfram og fara í nám, þar sem ég hafði ekki það sjálfstraust áður.
Hver eru næstu skref hjá þér?
Ég stefni á frekara nám í framtíðinni.
Myndir þú mæla með raunfærnimati?
Já, ég mæli svakalega mikið með því. Fyrir mig var þetta frábært fyrsta skref á leiðinni í nám og starfþróun.