Áttu barn í íþróttum eða frístundastarfi? kennir, þjálfar eða tengist íþrótta og frístundastarfi barna? Þá gæti þetta námskeið verið fyrir þig!
Saman í málinu er nýtt þróunarverkefni þar sem foreldrar barna af erlendum uppruna læra íslensku sem nýtist í daglegu lífi, í samskiptum við skóla, íþróttafélög, þjálfara og annað samfélagsstarf.
Einnig mun þetta henta aðilum með íslensku sem annað tungumál sem vilja efla íslensku kunnáttu sína í tengslum við íþróttir og tómstundastarf.
Hagnýtt íslenskunámskeið sem hjálpar þátttakendum að öðlast meira sjálfstraust í notkun íslensku við daglegar aðstæður sem tengjast íþróttum og félagstarfi barna. Þátttakendur efla tungumálafærni sína til að tengjast samfélaginu betur og taka virkari þátt í félagstarfi barna sinna.
Við æfum íslensku í raunverulegum aðstæðum.
Kennslan byggir á samtölum, þátttöku og hagnýtum verkefnum.
Markmiðið er að þátttakendur verði öruggari í íslensku og taki virkari þátt í lífi barna sinna og samfélaginu.
Námskeiðið er hluti af þróunarverkefninu Saman í málinu, sem er styrkt af Mennta- og barnamálaráðuneytinu og unnið í samstarfi við Norðurþing og Völsung.
Byrjar: 1 september 2026 og stendur yfir í 10 vikur eða alls 40 klst
Þriðjud. og fimmtud. Kl: 17:00 – 18:30
Kennari er Berglind Ólafsdóttir