Þetta námskeið er aðeins ætlað starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Norðurlands (HSN).
Sérhæfð endurlífgun I (ILS – Immediate life support)
Markhópur
Heilbrigðisstarfsfólk sem kemur sjaldan að endurlífgun en þarf samt að geta brugðist við og tekið þátt í endurlífgun t.d. hjúkrunarfræðingar, hjúkrunarfræði- og læknanemar og sjúkraflutningamenn.
Markmið
Markmiðið er að þjálfa heilbrigðisstarfsfólk í aðgerðum til að koma í veg fyrir hjartastopp, beita grunnendurlífgun þ.e. hjartahnoði öndunarhjálp og rafstuði þar til sérhæfð aðstoð berst. Tilgangurinn með þeirri þjálfun felst í því að gera starfsmanninn færari um að taka þátt í endurlífgun sem meðlimur teymisins.
Innihald
Námskeiðið er byggt á stöðlum evrópska endurlífgunarráðsins (útgefnar 2025) og kennt samkvæmt því. Námskeiðið er samansett af fyrirlestrum, verklegum æfingum og umræðum. Í fyrirlestrum er farið yfir orsakir og forvarnir hjartastopps og vinnuferla við endurlífgun. Í verklegum stöðvum er lögð áhersla á frumskoðun og endurlífgun, öndunarhjálp og teymisvinnu í endurlífgun. Mest er áhersla á verklegar æfingar og virka þátttöku nemandans.
Námsmat
Símat er stöðugt á námskeiðinu.
Þátttakendafjöldi
Lágmarksfjöldi miðast við 12 nemendur.
Kennslubók
European Resuscitation Council (2025. Immediate Life Support. ERC guidelines 2025 edition.
Leiðbeinandi: Frá Sjúkraflutningaskólanum
Hvar og hvenær:
Húsavík – 29. okt. kl. 8:00-16:00 – skráningu lýkur 15. september.