Á Þekkingarnetinu er boðið upp á ýmsar leiðir til að uppfæra verkfærin í lífi og starfi. Föstudaginn 18. september verður boðið upp á tækifæri fyrir fólk að læra og vinna með eftirfarandi fólki að því að þróa útileiki, borðspil, tölvuleiki og/eða eitthvað alveg nýtt.
Nýsköpunar-, háskóla- og símenntunarsviðin okkar, opna hér dyr sínar og glugga fyrir fólk að sækja sér eflingu og færni útfrá aðferðum nýsköpunar og skapandi hugsunar, tækni og aðstöðu í FabLab.
Upp á jökul og inn í íshella – í sýndarveruleika!
Ásta Olga Magnúsdóttirverður með okkur á Leikjadjamminu. Hún er verkefnastjóri á Vísinda- og nýsköpunarsviði Háskóla Íslands en hefur líka borið ýmsa aðra hatta, meðal annars innan leikjaheimsins og sýningagerðar.
Ásta hefur tekið þátt í gerð stafrænna leikja og gagnvirkra upplifana frá því um aldamótin. Hún starfaði lengi hjá Gagarín og kom þar að gerð nokkurra af flottustu gagnvirku sýningum landsins, meðal annars Lava Centre, Eldheima og Orku til framtíðar.
Nýjasta ævintýrið er jöklaupplifun í sýndarveruleika, unnin með sprotafyrirtækinu Into the Blue og Ásta ætlar að mæta með hana á Leikjadjammið!
Þar geta þátttakendur sett upp VR-gleraugun, skellt sér upp á jökul og inn í íshella, án þess að yfirgefa Hraðið.
Getur hlaup orðið að leik – og bærinn að sögusviði?
Rithöfundurinn Egill Bjarnason verður með stutta kveikju á Leikjadjamminu um hvernig hann hefur blandað saman sagnalist, hreyfingu og nærumhverfi.
Egill hefur meðal annars boðið upp á hlaup um Húsavík með sögulegu ívafi, þar sem leiðin sjálf verður hluti af frásögninni og þátttakendur upplifa bæinn á nýjan hátt.
Hvernig getum við nýtt sögur, staði og sérkenni nærumhverfisins sem efnivið í leiki? Og hvernig getum við glætt kunnuglega staði nýju lífi með meiri leik?
Kannski leynist leikurinn allt í kringum okkur.
Mentor Leikjadjammsins: Steingerður Lóa Gunnarsdóttir
Við erum ótrúlega glöð að fá alvöru kanónu í leikjahönnun norður til Húsavíkur!
Steingerður Lóa verður mentor á Leikjadjamminu og með okkur alla helgina. Hún mun miðla af reynslu sinni, hjálpa þátttakendum að þróa hugmyndir og styðja teymin við að koma leikjum sínum frá fyrstu hugmynd að tilbúinni útfærslu.
Steingerður Lóa er sjálfstætt starfandi leikjahönnuður og stundakennari við Háskólann í Reykjavík og Listaháskóla Íslands. Hún hefur komið að hönnun og útgáfu fjölda borðspila og tölvuborðspila og býr yfir mikilli þekkingu og reynslu á sviði leikjahönnunar og leikjafræða.
Hún hefur um árabil staðið fyrir spilamótum, leikjadjömmum, málstofum og kennslu og verið virk í íslensku sjálfstæðu leikjasenunni, meðal annars innan Game Makers Iceland. Hún kennir jafnframt á nýrri námsbraut í stafrænni listsköpun, INDA, sem Háskólinn í Reykjavík og Listaháskóli Íslands standa að.
Það verður ómetanlegt fyrir þátttakendur að hafa Steingerði Lóu með sér í gegnum allt sköpunarferlið!
Frá hugmynd að veruleika
Stefán Pétur, vöruhönnuður og nýsköpunarstjóri hjá Hraðinu, verður með stutta kveikju á Leikjadjamminu um leiðina frá fyrstu hugmynd að fullmótuðum leik.
Hann segir frá borðspili sem hann hannaði ásamt Sól Hrafnsdóttir með innblæstri úr norrænni goðafræði og gefur þátttakendum innsýn í hvernig hugmynd þróast, tekur á sig form og verður að einhverju sem aðrir geta upplifað og leikið.
Hvaðan kemur innblásturinn og hvað þarf til að breyta honum í raunverulegan leik?
Gæti neðansjávar gróðurhús orðið að leik?
Gyde Rudolph verður með stutta kveikju á Leikjadjamminu þar sem hún segir frá Blágörðum Húsavíkur og býður þátttakendum að horfa á verkefnið með augum leikjahönnuðar.
Hvernig væri hægt að nota leiki til að miðla hugmyndinni, takast á við raunverulegar áskoranir eða finna nýjar lausnir? Getur hafið, samfélagið og framtíð Húsavíkur orðið efniviður í borðspil, tölvuleik, útileik eða annars konar leikjaupplifun?
Hér verður raunverulegt verkefni úr nærumhverfinu að kveikju fyrir skapandi hugsun og lausnaleit.
Þátttakendur mega mæta með hugmynd í pokahorninu eða fengið hana á staðnum, komið ein/n/tt eða kynnst fólki og myndað teymi á viðburðinum.
Skráning og nánari upplýsingar: https://hradid.is/leikjadjamm/