Þekkingarnetið auglýsir starf forstöðumanns

Þekkingarnet Þingeyinga leitar að aðila í starf forstöðumanns. Þekkingarnetið er miðstöð símenntunar, rannsókna, háskólanáms og nýsköpunar á NA-horni landsins innan Þingeyjarsýslna.

Þekkingarnet Þingeyinga leitar að aðila í starf forstöðumanns.

Þekkingarnetið er miðstöð símenntunar, rannsókna, háskólanáms og nýsköpunar á NA-horni landsins innan Þingeyjarsýslna. Þekkingarnetið er svæðisbundin samsett stofnun sem sinnir fjölbreyttu verkefnasviði og rekur m.a. Hraðið miðstöð nýsköpunar og Fablab Húsavík.

Þekkingarnetið er leiðandi aðili í þróun og uppbyggingu þekkingarstarfs á svæðinu, þ.m.t. við myndun og rekstur Stéttarinnar á Húsavík og annarra atvinnuklasa á svæðinu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Ábyrgð og umsjón fjármála og reksturs
  • Samningagerð og fjármögnun verkefna
  • Stefnumörkun og fjölbreytt þróunarvinna tengt starfseminni
  • Mannauðsmál
  • Markaðssetning, kynningar- og ímyndarmál
  • Vinna að eflingu svæðisbundins þekkingarstarfs
  • Ýmis önnur verkefni í samráði við stjórn

Menntunar og hæfnikröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi
  • Þekking á stjórnun, rekstri og mannauðsmálum
  • Haldgóð þekking á fagsviðum Þekkingarnetsins
  • Frumkvæði og geta til að vinna að þróun og nýjum hugmyndum
  • Leiðtogahæfni og jákvætt hugarfar
  • Framúrskarandi færni til samstarfs og samskipta
  • Færni í alþjóðlegum samskiptum
  • Góð tölvukunnátta og tæknilæsi
  • Gott vald á mæltu og rituðu máli á íslensku

Starfsstöð og dagleg viðvera forstöðumanns er í vinnuklasanum STÉTTINNI á Húsavík, þar sem Þekkingarnetið hefur höfuðstöðvar. Þekkingarnetið er ein af stoðum byggðar og samfélaga í Þingeyjarsýslum. Virk þátttaka í nærsamfélaginu er því ein af forsendum ráðningar forstöðumanns og búseta á ársvísu því skilyrt. Jafnframt þarf forstöðumaður að vera reiðubúinn til að vinna að markmiðum stofnunarinnar af miklum metnaði á starfssvæðinu öllu,

Þingeyjarsýslum, m.a. með reglulegri viðveru á starfsstöðvum Þekkingarnetsins víðar en á aðalskrifstofu.

Leitað er eftir einstaklingi til að leiða af metnaði og krafti öfluga stofnun sem starfar í líflegu og frjóu umhverfi.

Sótt er um á www.mognum.is

Umsóknarfrestur er til og með 15. janúar 2026

Með umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda.

Nánari upplýsingar veita:

Telma Eiðsdóttir : telma@mognum.is

Sigríður Ólafsdóttir : sigga@mognum.is