Stofnunin rekur mönnuð námsver á Húsavík, Þórshöfn og í Mývatnssveit þar sem námsfólk getur fengið sólarhringsaðgang að vinnuaðstöðu sem fullbúin er skrifstofutækjum og húsgögnum. Þar er auk þess boðið upp á fjarprófaþjónustu. Á Kópaskeri, Raufarhöfn og Laugum í Reykjadal er einnig boðið upp á fjarprófaþjónustu eftir samkomulagi.
Á öllum þessum stöðum er nemendum boðið upp á aðstöðu til fjarprófahalds, með samþykki þeirra skóla sem við á í hverju tilviki.
Þekkingarnetið hvetur alla íbúa Þingeyarsýslu til að nýta sér þjónustuna og fá aðstöðu, ráðgjöf eða námsþjónustu af einhverju tagi.
Öll þjónusta og aðstaða Þekkingarnetsins fyrir fjarnema í Þingeyjarsýslum er gjaldfrjáls fyrir nemendur (þ.e. innifalin í skráningargjaldi í viðkomandi skóla).
Þjónustustöðvar / námsver Þekkingarnetsins:
Húsavík:
Höfuðstöðvar á Stéttinni á Húsavík, Hafnarstétt 3. Háskólanámsver með sólarhringsaðgengi, góð nettenging og fjarfundaaðstaða, kennslustofur, lesrými, vinnuaðstaða fyrir 8-10 (auk starfsmanna annarra stofnana). Vinsamlegast hafið samband við: Guðrún Ósk Brynjarsdóttir: s:464- 5100, gudrun@hac.is
Hægt er að bóka aðstöðu í bókunarkerfinu hér
Þórshöfn:
Starfsstöð í Kistunni á Þórshöfn. Námsver með sólarhringsaðgengi, góð nettenging og fjarfundaaðstaða, kennslustofa, vinnuaðstaða fyrir 3-5. Vinsamlegast hafið samband við: Heiðrún Óladóttir: s:464-5144, heidrun@hac.is
Mývatnssveit
Starfsstöð í Gíg. Námsver með sólarhringsaðgengi, vinnuaðstaða fyrir 4 auk aðstöðu til próftöku, góð nettenging og fjarfundaaðstaða. Vinsamlegast hafið samband við: Arnþrúður Dagsdóttir: s:464-5130, ditta@hac.is
Raufarhöfn:
Boðið er upp á fjarprófaþjónustu í stjórnsýsluhúsinu á Raufarhöfn. Vinsamlegast hafið samband við: Heiðrún Óladóttir: s:464-5142, heidrun@hac.is
Kópasker:
Boðið er upp á fjarprófaþjónustu í skólahúsinu á Kópaskeri. Vinsamlegast hafið samband við: Heiðrún Óladóttir: s:464-5142, heidrun@hac.is
Laugar í Reykjadal:
Boðið er upp á fjarprófaþjónustu í Þingey. Vinsamlegast hafið samband við: Guðrún Ósk Brynjarsdóttir: s:464- 5100, gudrun@hac.is
Frekari upplýsingar gefur Guðrún Ósk í síma 464-5100 eða gudrun@hac.is