Þekkingarnetið býður öllum fjarnemum, þ.m.t. háskólanemum, upp á víðtæka þjónustu og aðstöðu til náms. Stofnunin rekur mönnuð námsver á Húsavík, Þórshöfn og í Mývatnssveit þar sem námsfólk getur fengið sólarhringsaðgang að vinnuaðstöðu sem fullbúin er skrifstofutækjum og -húsgögnum. Að auki námsaðstöðu með aðgengi eftir samkomulagi á Kópaskeri, Raufarhöfn og Laugum í Reykjadal.
Á öllum þessum stöðum er nemendum boðið upp á aðstöðu til fjarprófahalds, með samþykki þeirra skóla sem við á í hverju tilviki.