A successful partnership between three centres for continuing education and the Northland Health Trust

Heilbrigðisstofnun Norðurlands, SÍMEY, Farskólinn á Norðurlandi vestra og Þekkingarnet Þingeyinga hafa undanfarin ár verið í góðu samstarfi varðandi fræðslu og starfsþróun starfsfólks HSN. Það samstarf byggði á Markviss þarfagreiningum sem unnar voru veturinn 2014-2015 á starfssvæði HSN. Vegna góðrar reynslu af því verkefni var ákveðið að framkvæma nýja þarfagreiningu og vinna nýja fræðsluáætlun sem hægt verður að styðjast við á komandi árum. Starfsemi HSN nær frá Blönduósi í vestri til Þórshafnar í austri og því er samstarf þessara þriggja símenntunarmiðstöðva lykilþáttur í að halda vel utanum símenntun starfsmanna á víðfemu svæði.

Undir lok síðasta árs var lokið við nýja Markviss þarfagreiningu og uppsetningu nýrrar fræðsluáætlunar fyrir HSN. Núna á vorönn 2022 hefur verið unnið samkvæmt nýrri fræðsluáætlun, sem gildir ársloka 2024. Í boði eru fjölbreytt námskeið fyrir starfsfólk HSN, ýmis í staðkennd eða í gegnum starfrænar lausnir.

The project was launched at the end of October 2020 with the signing of a contract for a seconded Training Manager. The professional development funds Ríkismennt, the SLFÍ Professional Development Fund and the Professional Development Fund for Municipal Employees of the State supported the project, along with the Professional Development Centre for University Staff. As the implementing body, SÍMEY led the project in collaboration with Farskólinn and Þekkingarnet Þingeyinga. The project has been worked on by project managers Ingunn Helga Bjarnadóttir and Kristín Björk Gunnarsdóttir, Halldór B. Gunnlaugsson for the Farskólinn in West Northland, and Helena Eydís Ingólfsdóttir for the Thingeying Knowledge Network.

Skipaður var stýrihópur sem í voru þrettán starfsmenn HSN af öllu starfssvæðinu sem greindi markmið verkefnisins og kom með tillögur um hvernig mætti ná þeim fram. Stýrihópurinn var áhugasamur og á fundum hópsins sem allir voru haldnir í gegnum TEAMS voru umræður gagnlegar og gáfu góðar upplýsingar sem nýttust vel við frekari vinnu og framvindu verkefnisins. Einnig voru skipaðir tveir rýnihópar til þess að meta nánar fræðsluþörf starfsfólks. Náin samvinna var jafnframt við mannauðsstjóra HSN við framkvæmd verkefnisins.

Við greiningarvinnuna voru tvær kannanir lagðar fyrir starfsfólk HSN, sem eru um 600 talsins, annars vegar viðhorfskönnun og hins vegar starfagreining. Verkefnið hefur gefið viðamiklar upplýsingar um hvað leggja ber áherslu á í fræðslumálum innan Heilbrigðisstofnunar Norðurlands. Næstu annir mun HSN í samvinnu við SÍMEY, Farskólann og Þekkingarnet Þingeyinga vinna að því að þjálfa og fræða starfsmenn til samræmis við þær áherslur sem birst hafa í viðhorfskönnun og þarfagreiningu meðal starfsmanna.