Opening of the exhibition Window on the World – Away from Home and Back Again

Tomorrow, Saturday at 3 p.m., the exhibition 'A Window to the World – Away from Home and Back Again' will be opened. The exhibition is the result of a summer project that Nicola von Kuilenburg has been working on this summer for Þekkingarnetið. The project is one of those to receive a grant from the North East Development Fund for 2024. The exhibition will take place at the Cultural House in Húsavík.

Nicola hefur í sumar tekið viðtöl við sex íbúa á starfssvæði Þekkingarnets Þingeyinga sem eiga það sameiginlegt að vera af erlendum uppruna. Hún hefur unnið upp úr viðtölunum sögur viðmælenda sinna sem fjalla þær um bernsku þeirra í heimalandinu, siði og venjur sem þau hafa jafnvel tekið með sér hingað þar sem þau hafa sest að og viðburði í heimalandinu sem jafnvel eru stórir á heimsvísu sem hafa haft áhrif á þau til skemmmri og lengri tíma. Sögurnar hafa verið þýddar með aðstoð viðmælenda á íslensku, ensku og móðurmál hvers og eins þeirra ásamt því að notast við var við gervigreind við þýðingarnar. Sögurnar voru svo lesnar og teknar upp á þremur tungumálum hver. Nicola tók einnig myndir af viðmælendum sínum og verða sögurnar með myndunum til sýnis á sýningunni ásamt því að gestum mun bjóðast að skanna QR kóða og hlusta á sögurnar lesnar á tungumálunum þremur sem fylgja hverjum viðmælanda Nicolu.

Tilgangur verkefnisins og sýningarinnar er að skyggnast aðeins inn í heim sem mörgum okkar er ókunnur þar sem við höfum mörg hver hvorki ferðast til þeirra staða sem viðmælendur Nicolu né búið þar og þekkjum við því ekki daglegt líf. Það færir okkur því nýja þekkingu sem getur stuðlað að auknum skilningi og umburðarlyndi í garð hvers annars.

Það hefur verið afar áhugavert að fylgjast með vinnu Nicolu við verkefnið í sumar og er óhætt að segja að afraksturinn hafi farið fram úr væntingum okkar. Viðmælendur hennar voru tilbúnir til að segja mun persónulegri sögur af ævisporum sínum en við höfðum gert okkur vonir um og þá hefur Nicola lagt sig fram um að ganga þannig frá bæði sögum og sýningunni þannig að viðmælendunum og þær sögur sem þeir segja sé sýnd nærgætni og viðring.

Við erum full eftirvæntingar að deila afrakstrinum með gestum sýningarinnar, hvort tveggja á opnuninni á morgun og þá daga sem sýningin mun standa. Sýningin verður í anddyri bókasafnsins og stendur dagana 24. ágúst-14. september og er opin á opnunartíma safnsins.