Sumarstörf háskólanema á Þekkingarnetinu

Hér á Þekkingarnetinu bjóðum við uppá fjölbreytt sumarstörf fyrir háskólanema, hvort sem þeir eru á fyrstu árum námsins eða að nálgast útskrift. Markmið okkar er að búa til tækifæri fyrir nemendur til að öðlast starfsreynslu, þróa hæfni sína og takast á við raunveruleg verkefni sem nýtast bæði í námi og á framtíðarstarfsferli.

Verkefnin eru margvísleg, en lagt er upp með að nýta hæfileika hvers og eins með vali á verkefnum til þess að tækla. Þetta gefur nemendum kost á að vinna að viðfangsefnum sem tengjast þeirra áhugasviði og menntun.

Í sumar eru tveir háskólanemar að vinna hjá okkur og hér fyrir neðan kemur smá um þau og verkefni þeirra í sumar:

Sunna Rae stundar nám í leikskólakennarafræðum við Háskólann á Akureyri. Hún flutti til Húsavíkur fyrst fyrir um ellefu árum síðan, en hefur búið víða, meðal annars stóran hluta ævi sinnar á Akureyri og Nýja-Sjálandi, auk þess sem hún dvaldi um tíma í Englandi. Áður en hún hóf háskólanám starfaði hún í leikskóla og kom til Þekkingarnetsins í raunfærnimat og í kjölfarið lauk hún námi á leik- og stuðningsfulltrúabraut. Reynslan af störfum hennar með börnum og námið hjá Þekkingarnetinu vakti aukinn áhuga á faginu og varð hvatinn að frekara námi á sviði leikskólafræða.

Það er skemmtileg staðreynd að Sunna hlaut viðurkenningu frá Fræðslumiðstöð atvinnulífisins sl. haust vegna einstakrar elju og metnaðar í námi. Sérstaklega var dregið fram að hún hefði verið öðrum góð fyrirmynd í því að nýta tækifæri til náms og þróunar í gegnum leiðir framhaldsfræðslunar.

Hjá Þekkingarnetinu hefur Sunna meðal annars unnið að þýðingum, kynningum og tekið þátt í þróun nýs námsefnis fyrir íslenskunámskeiðið Saman í málinu, sem verður kennt í haust. Hún finnur strax hversu margt hún er að læra sem mun nýtast henni í framtíðinni og hvernig hún getur nýtt áhuga sinn á hugmyndavinnu og sköpun í verkefnum sínum.

Huginn var í framhaldsskólanum á Laugum og stundar nú nám í iðnaðar- og orkutæknifræði við HR. Í náminu er rík áhersla lögð á verklega vinnu og hafa nemendur aðgang að fjölbreyttri aðstöðu og tækjabúnaði sem styður við verkefnavinnu og hagnýta þekkingu.

Hann er fæddur og uppalinn í Reykjavík en flutti síðar í Kinnina Þingeyjarsveit. Á meðan hann var í framhaldsskóla vann hann þrjú sumur á sveitabæ í Kinninni. Það var afar fróðleg og gefandi reynsla sem hann segir að hafi kennt sér ábyrgð, vinnusemi og margt fleira.

Á meðan hann var í framhaldsskóla kviknaði mikill áhugi á tölvum, raftækni og tækni almennt. Síðan þá hefur hann haft mikinn áhuga á að dýpka þekkingu sína á þessum sviðum og skilja betur hvernig tæknin virkar.

Hann segir því að það sé afar skemmtilegt og lærdómsríkt tækifæri að fá að starfa í  Fab labinu á Húsavík, þar sem hann geti unnið með tæki og aðferðir sem tengjast náminu beint. Starfið gefur honum kost á að efla bæði þekkingu sína og verklega færni, kynnast nýjum lausnum og öðlast reynslu sem muni nýtast vel bæði í áframhaldandi námi og á framtíðar starfsferli. Auk þess segir hann vinnuna veita sér innsýn í hvernig tæknileg þekking er nýtt í raunverulegum verkefnum og daglegu starfi.

Við hvetjum áhugasama um sumarstörf 2027 að ræða málið við háskólakennara sína og Hildi hjá Þekkingarnetinu. Það eru ýmis tækifæri á starfsvæði Þekkingarnetsins.