Fab Lab Húsavík fékk á síðasta ári styrk úr Barnamenningarsjóði til að bjóða upp á Hljómverkstæði fyrir krakka á grunnskólaaldri.
Við upphaf verkefnisins var boðið upp á opna tíma þar sem krakkarnir gátu komið, fengið hugmynd að hönnun og gerð hljóðfæris að eigin vali. Tímarnir voru fyrst og fremst sóttir af þremur drengjum á unglingsaldri. Verkefnið var því tekið til endurskoðunar í þeim tilgangi að ná til fleiri krakka. Niðurstaðan var að bjóða öllum nemendum í 5. bekk Borgarhólsskóla að taka þátt í Hljómverksmiðjunni. Krakkarnir komu í 5-6 manna hópum í Fab Lab Húsavík og hver hópur kom í nokkur skipti.
Krakkarnir fengu kynningu á tækjum, forritum og verkfærum fab labsins sem komu að gagni við hljóðfærasmíðina. Þau fengu ekki alveg full frelsi til að smíða og hann sitt eigið hljóðfæri heldur var það einskorðað við að þau gerðu öll flautu. Hönnun hverrar flautu varð hins vegar einstök þar sem nemendur þurftu að finna lausnir til að setja flauturnar sínar saman. Meðal þess sem nýttist voru latexhanskar sem voru klipptir til að útbúa hring til þéttingar og hespur til að skrúfa utan um og þétta enn frekar.
Verkefnið var samstarfsverrkefni Fab Lab Húsavík og Tónlistarskóla Húsavíkur. Kennari Tónlistarskólans fylgdi nemendum í 5. bekk í hvert skipti og þegar þau höfðu lokið við flautugerðina leiðbeindi hann nemendum þannig að þau næðu hreinum tóni úr flautunni og í kjölfarið sömdu krakkarnir undir leiðsögn hans lítið tónverk í sameiningu. Verkið var samið, æft og flutt strax á eftir fyrir áhorfendur á Planinu á Stéttinni.




