Fablab smiðja – Sköpun, hönnun og gaman

Í smiðjunni lærir þú að nýta tæknina sem er að breyta iðngreinum í dag. Við leggjum sérstaka áherslu á 3D-teikningu, fræsara og málmvinnu, auk þess sem farið verður yfir öll helstu tæki og búnað hjá FabLab Húsavík.

Þetta er hagnýtt nám fyrir fólk sem vill:

  • hanna og smíða eigin lausnir
  • læra að vinna með stafræna framleiðslu
  • þróa hugmyndir fyrir vinnuna eða eigin verkefni
  • bæta við sig færni sem nýtist beint í iðnaði og verklegum störfum

Kennt verður einu sinni í viku, yfirleitt frá 17:00–19:00, en einstaka skipti til 20:00. Námið hefst þriðjudaginn 1. september.

Kennarar eru reynslumiklir hjá Fablab Húsavík: Karen, Helga, Stefán Pétur, Árni og Jón frá FabLab Akureyri, ásamt fleirum.

FabLab smiðjan er 88 klst. viðurkennd námsleið frá Fræðslumiðstöð atvinnulífsins.

Ef þú hefur gaman af því að smíða, laga, hanna eða finna nýjar lausnir þá er þetta nám fyrir þig.

Verð 52.000 kr