Þekkingarnet Þingeyinga býður upp á tveggja daga námskeið um hagnýta gervigreind á Húsavík dagana 9. og 10. október 2026. Námskeiðið er ætlað þeim sem hafa litla sem enga reynslu af gervigreind en vilja læra að nýta hana sér til framdráttar — í starfi, námi og daglegu lífi. Engin tækniþekking er nauðsynleg, aðeins forvitni og vilji til að prófa. Bæði yngri og eldri borgarar eru hjartanlega velkomnir.
Um hvað snýst námskeiðið?
Gervigreindin er eitt öflugasta verkfærið sem staðið hefur almenningi til boða, en margir veigra sér við að taka fyrsta skrefið. Á þessu námskeiði förum við yfir grunninn á mannamáli, skoðum fjölmörg hagnýt dæmi og gefum þátttakendum tækifæri til að vinna með sín eigin verkefni undir leiðsögn. Markmiðið er einfalt: að þú gangir út með aukið öryggi og verkfæri til að halda áfram á eigin forsendum.
Á námskeiðinu lærir þú meðal annars:
- Hvað gervigreind er — útskýrð á ”mannamáli”
- Hagnýt dæmi úr starfi og daglegu lífi: ritun, skipulag, tímasparnað og lausn verkefna
- Að móta góðar fyrirspurnir og meta svörin gagnrýnið
- Hvað ber að varast — persónuvernd, traust og ábyrga notkun
- Leiðir til að halda áfram að læra sjálfstætt eftir námskeiðið
Dagskrá
Föstudagur 9. október
- Kl. 9–12 — Fyrirlestur: Hvernig gervigreindin getur nýst í margvíslegum verkefnum og störfum, með dæmum, spurningum og umræðum.
- Kl. 13–16 — Vinnustofa I: Þátttakendur byrja að vinna með eigin verkefni — eitt stórt eða nokkur smærri — og fá aðstoð við að móta nálgun.
Laugardagur 10. október
- Kl. 9–12 — Vinnustofa II: Þátttakendur dýpka verkefnin sín, fara yfir hvað virkaði vel og hvernig best er að halda áfram. Samantekt og næstu skref.
Gott er að mæta með fartölvu og hugmynd að verkefni, svo vinnustofan nýtist sem best. Tímasetningar geta tekið minniháttar breytingum.
Leiðbeinandi
Leiðbeinandi er Hulda Ragnheiður Árnadóttir, forstjóri Náttúruhamfaratryggingar Íslands. Hulda hefur náð góðum tökum á að nýta gervigreind í daglegu starfi og brennur fyrir því að miðla þeirri þekkingu áfram. Hennar orð: „Ég fór seint í háskóla og hef komist langt á trú á eigin getu, og með því að grípa þau tæki sem hverju sinni standa til boða. Gervigreindin er nýjasta tækið í verkfærakistunni minni — og mig langar að miðla þeirri reynslu áfram til þeirra sem enn eiga eftir að stíga þetta skref.”
Verð og skráning
- Námskeiðsgjald: 10.000 kr., greiðist við skráningu og er óafturkræft.
- Skráningarfrestur er 15. september 2026. Takmarkaður fjöldi sæta — fyrstir koma, fyrstir fá.