Skyndihjálp 12 klst

Skyndihjálp 12 klst.
Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem vilja læra skyndihjálp og endurlífgun og öðlast þekkingu og góða færni í að veita nærstöddum aðstoð í bráðatilfellum. Námskeið fyrir þá sem vilja gefa sér góðan tíma í að læra skyndihjálp s.s. almenning, sjálfboðaliða í skyndihjálparhópum Rauða krossins og nemendur sem fá einingu fyrir að taka skyndihjálparnámskeið.

Markmið:
Að auka þekkingu og færni þátttakenda í að beita á öruggan hátt einföldum aðferðum í skyndihjálp.
Að auka færni í að meta einkenni algengra sjúkdóma og áverka.

Viðfangsefni
Kynning; hvað er skyndihjálp?
Undirstöðuatriði; streita í neyðartilfellum, tilfinningarleg viðbrögð eftir að hafa veitt skyndihjálp, sálrænn stuðningur og að forðast sýkingar.
Fjögur skref skyndihjálpar; tryggja öryggi á vettvangi, meta ástand slasaðra eða sjúkra, sækja hjálp og veita skyndihjálp.
Grunnendurlífgun og sjálfvirkt hjartastuð; að athuga viðbrögð, að opna öndunarveg, að athuga öndun, hjartahnoð og blástursaðferð, sjálfvirkt hjartastuð (AED), endurlífgunarkeðjan, hliðarlega og losun aðskotahlutar úr öndunarvegi.
Skyndihjálp:
Áverkar; innvortis- og útvortis blæðingar, sár, brunasár, áverkar á höfði, hálsi eða baki, áverkar á beinum, vöðvum eða liðum, eitranir hitaslag/hitaörmögnun og ofkæling.
Bráð veikindi; brjóstverkur (hjartaáfall), bráðaofnæmi, heilablóðfall, flog, sykursýki og öndunarerfiðleikar (astmi).
Skyndihjálp framhald; nánari líkamsskoðun, eitrun, blóðnasir, lost, sár og sáraumbúðir, raflost, höfuðáverkar, tannáverkar, skorðun á hrygg, áverkar á brjóstkassa og kvið, vöðvakrampar, sýklasótt, yfirlið og spelkun útlima.
Fræðsluefni
Kennsluglærur. Útgefandi fræðsluefnis er Rauði krossinn á Íslandi.
Inntökuskilyrði
Æskilegt er að þátttakendur kynni sér fræðsluefnið áður en námskeiðið hefst.

Námsmat
Frammistaða er metin samfellt í gegnum allt námskeiðið. Ekki er skylda að ljúka skriflegu eða verklegu prófi en þátttakendum stendur það þó til boða í lok námskeiðs.

Viðurkenning
Eftir að hafa setið námskeiðið fá þátttakendur viðurkenningu frá Rauða krossinum á Íslandi og velferðarráðuneytinu. Mælt er með endurmenntun annað hvert ár.

Efnisatriðin eru viðbót fyrir 4 klst. námskeið.
Eitranir
Hitaslag / hitaörmögnun og ofkæling
Lost
Blóðnasir
Sár og sáraumbúðir
Raflost
Höfðuáverkar  
Tannáverkar
Skorðun á hrygg
Áverkar á brjóstkassa og kvið
Vöðvakrampar
Sýklasótt  
Yfirlið
Spelkun útlima

Staðsetning: Stéttin, Húsavík

Tímasetning: 02.11. og 03.11.2026 kl 9-15

Verð: 27.900