Á STÉTTINNI starfa um 50 heilsársstarfsmenn, auk frumkvöðla, rannsakenda og námsfólks sem dvelur við tímabundin verkefni. Rannsóknir og þróunarverkefni ná yfir fjölmörg svið, svo sem: fuglavistfræði og náttúrufræði, rannsóknir á sjávarspendýrum, lýðfræði og byggðaþróun, menntun, námsráðgjöf og fullorðinsfræðslu.
Auk þess er á staðnum fullbúið FabLab, opið fyrir frumkvöðla, nemendur, listafólk og almenning sem vill þróa hugmyndir og halda áfram í átt að sköpun og tækni.
STÉTTIN er fyrst og fremst rými þar sem fólk, fyrirtæki og stofnanir geta leitað aðstoðar, komið með hugmyndir, fengið ráðgjöf eða átt í samstarfi um ný verkefni. Hér eru öll velkomin – hvort sem um er að ræða frumkvöðlastarf, rannsóknir, nám eða einfaldlega spurningar og samtal.
STÉTTIN á Húsavík er vettvangur þar sem fortíð, nútíð og framtíð mætast og nýjar lausnir verða til.