Tilraunakennsla í verkefninu – Hagnýt gervigreind í daglegum störfum gekk mjög vel

Árið 2025 hlaut Þekkingarnet Þingeyinga styrk úr Þróunarsjóði framhaldsfræðslunnar til að þróa námskrána Hagnýt gervigreind í daglegum störfum. Markmið verkefnisins er að skrifa hagnýta og aðgengilega námskrá sem hjálpar fólki að nýta gervigreind í starfi og daglegu lífi og prufukeyra hana með tveimur hópum, annars vegar í fjarkennslu og hins vegar í staðkennslu.

Námskráin er 58 kennslustundir og er ætluð fólki í almennum störfum á vinnumarkaði sem vill kynnast því hvernig gervigreind getur auðveldað verkefni, sparað tíma og stutt við fjölbreytt störf. Lögð er áhersla á að kynna helstu verkfæri, þjálfa þátttakendur í að nota þau á hagnýtan hátt og fjalla um mikilvæga þætti eins og gagnrýna hugsun, öryggi, persónuvernd og ábyrga notkun tækninnar.

Nú er tilraunakennslu fyrri hópsins lokið. Sá hópur sótti kennsluna í fjarkennslu og gekk hún afar vel. Þátttakendur voru mjög ánægðir með námskrána og gáfu henni góða einkunn. Endurgjöfin sýnir að efnið nýtist vel í ólíkum störfum og að margir sjá strax hvernig hægt er að beita gervigreind til að einfalda dagleg verkefni.

Á næstu vikum verður unnið áfram með endurgjöf þátttakenda og námskráin fínstillt áður en hún verður prufukeyrð með seinni hópnum í staðkennslu. Að þeirri vinnu lokinni verður námskráin fullunnin og tilbúin til notkunar í fræðslu fyrir markhóp framhaldsfræðslunnar.

Með þessari frétt birtum við einnig stutt myndband sem einn nemandi, Jonas Alexander Lackner, vann sem lokaverkefni í námskeiðinu. Verkefnið kom einstaklega vel út og sýnir á skemmtilegan hátt hvað hægt er að gera með gervigreind. Þar notaði þátttakandinn ýmis gervigreindarforrit til að búa til teiknimynd, semja efni, talsetja og texta myndbandið.