Viltu fræsa eða lóða í kvöld?

Hér er útskriftarhópurinn

Í gær útskrifuðust átta nemendur úr stafrænni smiðju hjá Þekkingarnetinu. Kennslan hófst í janúar og fór öll fram í Fablabi Húsavíkur. Grunnmarkmið smiðjunnar er að efla færni íbúa í notkun stafrænnar tækni og að koma hugmynd í framkvæmd. Í lok stafrænnar smiðju hafa nemendur öðlast grunnfærni á ýmis tæki og tól í Fablabinu og eru hvattir til að koma sem oftast í fablabið að nýta þá færni og skemmta sér við að þróa hluti og búa til. 

Í smiðjunni hlutu nemendur kennslu og prófuðu sig áfram í þrívíðri teiknun, fræsun, bróderingu með stafrænni saumavél, mótagerð, laserskurði, forritun, vínylmerkingum, virkni rafrása og málmskurði.

Í fablabinu fá íbúar aðgang að hinum ýmsu stafrænu tækjum og aðstöðu. Markmið fablab smiðja er ekki einungis að kenna tæknilega færni heldur einnig að efla skapandi hugsun, frumkvæði og samstarf. Með því að bjóða aðgengi að stafrænum smiðjum og þjálfun í nýrri tækni er stuðlað að auknum sköpunarkrafti í samfélaginu og nýsköpunarfræjum sáð.

Með því að efla hæfni fólks á öllum aldri í stafrænum lausnum og tækni byggjum við upp sterkara samfélag þar sem fyrirmyndir leynast í hverju horni fyrir yngstu kynslóðina og framtíðarfærni.